Daginn, daginn, daginn. Ég var að koma úr bíó (no surprise
there

) Var á The Da Vinci code', kláraði að lesa bókina á
fimmtudaginn... Ég verð að segja að ég varð fyrir vonbrigðum...
Eins og bókin rígheldur manni.

Ég var líka í bíó í gær. Fór á
She's the man

Krúttí krúttí mynd! Þetta er svona týpísk mynd sem
að er gaman að horfa á, það er ekki flóknara en það svo að ég ætla
ekkert að vera að flækja.
Lífið gengur annars sinn vanagang. Ég er að vinna á
Landsspítalanum á Hringbraut frá kl.7-3 á daginn í 100% vinnu og
svo á Apótekinu um helgar og stundum á kvöldin á virkum dögum. Er
samt strax orðin þreytt á að vera komin í rútínu. Það er
e-ð við það sem fer í mig. Ég fæ hroll að hugsa til þess að þetta
er það sem að fólk gerir alla sína vinnandi ævi... 9-5 vinna.
Mig langar að ferðast fyrst áður en (ef að) það skyldi koma fyrir
mig og fá að vera vitlaus og gera mistök. 
HÆHÓ OG JIBBÍ JEIJ OG JIBBÍ JEIJ 17.júní var afar þunnur
hjá mér
Kíkti niðrí bæ um daginn með Ellu og Önnu Þóru en svo um
kvöldið var ég komin heim kl. 2.30. Fyrr um kvöldið settumst við
Ella inná Apótekið og fengum okkur að drekka og okkur leið
eins og við værum á barnahátíð þegar við litum út á Austurstræti
þar sem við sátum við gluggann á kaffihúsinu.... Mjöööög drukkinni
barnahátíð. Þarna ráfuðu þau um ýmist með breezera, light bjóra eða
eitthvert dularfullt sull í 2 lítra kókflöskum. Æska landsins.
Meðalaldurinn hefur verið um 14-15 ára. Ég get svo svarið það. Og
þarna sátum við og fylgdumst með grey börnunum lulla áfram með
blýþunga bakpokana, og ég gat aðeins mér hljóðin sem bárust frá
þeim í hverju skrefi, þaktfast glamr og sull hljóð.... Kling,
kling, glúgg, glúgg. Við fundum hvernig við eltumst á staðnum og
vorum allt í einu orðnar hrumir reynsluboltar sem sátu sötrandi
gamalmennadrykkina okkar og horfa á æskuna leika sér....
Án alls gamans samt þá þarf maður verulega að fara að passa sig.
Það er náttúrulega bara tímaspursmál hvenær maður mun hitta heitan
gaur á jamminu og komast svo að því eftir einhvern tíma að gaurinn
er '90 módel
Eins og að hann væri að klára 10. bekk
núna... Mig hryllir við þeirri tilhugsun.
En ég er out, ætla að heilsa uppá dömurnar á
Kafib. Bæ í bili
<3